Atvinna

Almenn umsókn

Við erum alltaf að leita að hæfileikaríku fólki til starfa. Endilega sendu okkur línu með upplýsingum um reynslu og menntun sem þú hefur aflað þér og þú ert komin/n á lista hjá okkur.

Athugið að almennum umsóknum er ekki svarað sérstaklega en umsækjendum er frjálst að minna á sig með tölvupósti á netfangið pollinn@pollinn.is.


Starfsmaður í verslun

Óskum eftir starfsmanni í verslun, fullt starf.  Starfið fellst í afgreiðslu til viðskiptavina, vörumóttöku og skráningu á efni.  Einnig þjónusta við Vodafone og umsýslu við þeirra viðskiptavini.  Viðkomandi þarf að hafa tölvukunnáttu, ríka þjónustulund, skipulagshæfileika og jákvætt hugarfar.

Vinsamlega sendi ferilskrá á netfangið pollinn@pollinn.is og/eða hafið samband við Sævar í síma 893-8865.


Rafvirkjar með sveinspróf

Rafvirki með sveinsréttindi eða meira, óskast til starfa. Fjölbreytt verkefni á starfssvæði sem nær um Vestfjarðarkjálkann. Vinsamlega sendi ferilskrá á netfangið pollinn@pollinn.is og/eða hafið samband við Sævar Óskarsson s 893 8865.